Leita í fréttum mbl.is
Embla

Húmorsleysi trúaðra ?

Ný auglýsing Símans er án efa tilefni til margvíslegra  umræðna um trú og móðgunargirni trúaðra -  það eru hins vegar fleiri fletir á umræðunni sem væri áhugavert að ræða. Auglýsingabransinn hefur áttað sig á að ein besta auglýsing sem nokkur vara getur fengið er umræða í samfélaginu og til tryggja að umræða skapist um vöruna þá er öruggast að hneyksla fólk.  Þannig er hægt að skapa í kringum vöruna ákveðna stemmingu eða meiningu sem höfðar til þess markhóps sem er líklegur til að kaupa vöruna. 

Það má ætla að Síminn sé t.d. í þessu tilfelli að beina sjónum sínum að ungu upprennandi fólki með nokkuð frjálslynda hugmyndir. Þó ekki unglinga því unglingar eiga yfirleitt ekki mikla peninga en frekar ungs fólks sem er á milli 20 - 40 ára. Helstu neytendur nútímans og mest nýungagjarnasta fólkið.

Gott og vel ég hef alveg húmor fyrir þessari auglýsingu eins og ég hef húmor fyrir Life of Brian en ég skil samt sem áður þá sem ekki hafa það og mér finnst ekkert sjálfsagt að auglýsingar sem birtast manni án allra viðvaranna í sjónvarpinu hafa einhvern  ótakmarkaðan rétt til að ofbjóða fólki.  Auk þess sem auglýsingar eiga að hafa ákveðin siðferðisleg takmörk - þó ég sé ekki viss um að um auglýsingar þurfi að setja skýrari lög nema þegar snýr að börnum. Auglýsingastofur þurfa náttúrlega að vega og meta sín samfélagslegu gildi og eigendur varanna þurfa að velja hvaða áhættur þeir taka með ímynd fyrirtækja sinna. 

Hin umræðan er sú sem átti sér stað í kjölfar skopmyndanna af Múhameð spámanni í dönsku blöðunum nýverið - þá var samúð manna með blygðunarkennd íslamskra trúarhópa sem reiddust svakalega ekki mikil hérlendis. Aftur á móti má spyrja hvort reiðin sem virðist hafa blossað upp hjá kristnum íslendingum hafi samúð þeirra sem ekki urðu stór hneykslaðir vegna auglýsingarinnar - erum við tilbúin að virða rétt kristinna til hneykslan en ekki íslamskra araba ?

 Hér er svo auglýsingin á Youtube fyrir þá sem ekki hafa séð hana:


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Örn Torfason

Ég er trúaður, en ég tilheyri ekki neinu trúfélagi.

Margir rugla saman trú og trúarbrögðum. Ef grannt er skoðað hafa trúfélög, sem iðulega iðka trúarbrögð, aðeins einn tilgang eins og hvert annað fyrirtæki - að viðhalda sjálfu sér.

Móðgunargirni félaga í trúfélögum stafar af tilhneigingunni til að standa fastan vörð um trúarskoðanir þær sem viðkomandi trúfélag hefur í frammi. Trúarskoðanirnar snúast oftar en ekki um að ala á ótta við refsingu guðsins sem þar er dýrkaður við að bregða út af trúarbrögðunum.

Það eru ekki allir trúaðir menn í trúfélögum og því síður móðgunargjarnir.

Hér er að minnsta kosti einn trúaður sem er laus við hlekki trúarbragða og finnst auglýsing Símans mjög fyndin og skemmtileg.

Fín grein hjá þér Bryndís.

Kristinn Örn Torfason, 5.9.2007 kl. 01:45

2 identicon

Er svo mikil reiði meðal kristinna? Miðað við umfjöllun í gær var leitað eftir viðbrögðum biskups (biskupbsstofu) en hann hringdi ekki af fyrra bragði í fjölmiðla til að kvarta.

Jú það fylgdi líka fréttum að "fjöldi fólks" hefði haft samband en ég hef ekki séð nánari skigreiningar á því.

Mér finnst líka mjög hæpið að bera saman "samúð" okkar gangvart viðbrögðum við teikningunum af Múhameð spámanni í fyrra við "samúð" við "reiði" kristinna núna.

Ef ég man rétt þá logaði allt í óeirðum víða um heim vegna myndanna af Múhameð spámanni og einhverjir týndu lífinu, ásamt því að mörgum var hótað lífláti.

Eiga þau viðbrögð skilda "samúð"?

Einhverjir kristnir einstaklingar hafa hins vegar leyft sér að láta í ljós skoðun sína í síma (og kannski með með bloggi/skrifum) við þessari auglýsingu.

Er það bannað? Búum við ekki þjóðfélagi sem leyfir frjáls skoðanaskipti og að fólk megi láta tilfinningar sínar í ljós (í ræðu og riti) án þess að vera sakað um húmorsleysi og jafnvel ofstæki?

Þurfum við öll að hafa sama húmor?

Finnst ykkur virkilega hægt að bera saman vibrögð múslima við teikningunum og kristinna við auglýsingunni?

Svo má líka velta því fyrir sér hvort viðbrögðin ráðist ekki frekar af aldri en trú.

Annars finnst mér auglýsingin flott.

Ásthildur (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 12:28

3 identicon

Mér finnst þetta mjög flott auglýsing. Mikið lagt í hana, og sniðug hugmynd.

En ég skil ekki hvernig kristið fólk hér á Íslandi getur verið hneykslað yfir henni, nema það reiti það til reiði að segja kristnar sögur með einhverjum breytingum frá biblíunni.

Það er ekki eins og þeir geri gys að mikilvægasta karakter kristinna, Jesú hinum smyrða. Þeir stinga einfaldlega farsímum inn í söguna og gera Júdas að svona grínista.

Ástæðan fyrir því að svona hneykslun hjá ákveðnum þjóðfélagshópi fær svona mikla athygli er sú að við erum öll með þá flugu í hausnum að það megi ekki móðga trúarlegar skoðanir fólks. Það á hins vegar að vera í lagi að móðga pólitískar skoðanir fólks (Spaugstofan), hagfræðilegar skoðanir og allar aðrar skoðanir.

Hættum þessu rugli, það eru þau sem kjósa að trúa þessum sögum, ekki við!

LegoPanda (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 16:52

4 identicon

Ég er ekki trúræknasti maður í heiminum en mér finnst auglýsingin klárlega ósmekkleg og það hefur ekkert með trú að gera. Jesú er söguleg persóna sem var myrtur af yfirvöldum þess tíma á hrottafenginn hátt. Að gera gis að seinustu kvöldmáltíð hans og samskiptum hans við þann sem seldi yfirvöldum hann í hendur, til þess að selja fleiri síma, hljóta allir að sjá að er smekklaus markaðsetning.

Þetta er eitthvað svipað því og að gera auglýsingu með einhverjum góðum grínara í líki Kennedy rétt áður en hann er skotinn í hausinn eða eitthvað því um líkt. Svoleiðis auglýsingu mætti eflaust einhvern veginn gera fyndna en það myndi seint réttlæta hana. 

Eins dauði er annars brauð er máltæki sem er notað í síauknum mæli. Mér finnst það samt mjög athugavert að fyrirtæki á borð við Símann skuli sjá sig knúið til að beyta svo lúalegri markaðsetningu við að auglýsa vöru sína.

Síminn hefur þó áður gerst sekur um afar smekklausar lausnir í auglýsingum og er skemmst að minnast auglýsinga þar sem unglingar voru hvattir til að ,,fylla á frelsið". Þar var (af því er virtist) barnung stúlka látin skaka sér uppi í rúmi meðan hún skrafaði í símann. Því næst stendur hún upp og á meðan barmur hennar er í aðalhlutverki, en á honum er mælir sem fer úr tómu í fullt.

http://www.youtube.com/watch?v=UEo6aVTSNmM

Nú hrista eflaust margir hausinn og finnst þetta óþarfa viðkvæmni hjá mér. Það má vel vera. Mér finnst bara spes að nota unga krakka í auglýsingu ætluðum unglingum og nota á sama tíma svo augljós tákn af kynferðislegum toga. Þetta er að sjálfsögðu ekki stórmál, en finnst fólki orðið fullkomlega eðlilegt að stórfyrirtæki (á íslenskan mælikvarða) spili inná hormónastarfsemi unglinga til að þau tali meira í símann? Spila jafnvel inná barmstærðar komplexa? Er ég kannski alveg úti á túni með þetta eða hvað? Dæmið bara sjálf. 

Þetta blikknar allavega í samanburði við að gera kómíska sketsa um aðdraganda dauða Jesú til að selja fleiri síma.

Spurning hvort það komi ekki ein góð auglýsing með Díönu Prinsessu frá þeim fljótlega. Ég get séð fyrir mér að það væri hægt að sjá einhvern húmor í dauða hennar líka ef menn hafa áhuga á að sjá húmor í dauða á annað borð. Það myndi vekja mikið umtal og svona.

Það fer rosalega í taugarnar á mér að mörgum finnst að ég hljóti að vera einhver bókstafstrúarmaður til að sjá eitthvað að þessu. Mér finnst það einfaldlega ögra almennu velsæmi að nota sorgaratburð eins og morðið á Jesú til að fá aukna athygli. 

Nú er höfundur auglýsingarinnar sjálfur trúaður og finnst þá væntanlega að hann sé með skotleyfi á að gera grín að trúnni sinni. En það er heila málið; Þetta snýst ekkert um trú í mínum huga. Það er sama hvort það væri verið að grínast með hengingu Saddams Husseins í auglýsingu. Það er einfaldlega engum sæmandi að grípa til þannig ráða til að græða nokkrar auka millur og sýnir í raun aðeins hvað fólk er tilbúið að ganga langt fyrir athyglina.

Góð grein og vissulega þörf umræða. Átti ekki að vera svona langt comment hjá mér. Sorrý. Ég er bara djöfull heitur yfir þessu máli ;)

Helgi Þór Harðarson (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 16:57

5 Smámynd: Kristján Magnús Arason

Það er nú alveg út í hött að bera saman viðbrögð kristinna við þessari auglýsingu og viðbrögð múslima við teikningum af Múhameð.  Ég ábyrgist það að það myndu ekki margir hafa samúð með sjónarhorni kristinna í þessu máli ef þeir færu að hóta Jóni Gnarr lífláti vegna þessa máls.

Kristján Magnús Arason, 5.9.2007 kl. 18:16

6 identicon

Spurningin er alltaf hvað má þá næst.
Ef einhverjum dytti í hug að kona Jóns Sig sem sat í festum í 14 ár væri að hringja í mann sinn í kaupmannahöfn og sæi hann þá á kránni umvafinn kvennfólki mundi þá hrikta í stoðum?

Ragnar (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 18:38

7 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Sjálfum finnst mér auglýsingin dásamleg og hef lúmskt gaman af viðkvæmni trúaðra(og ótrúaðra) gagnvart henni.

Allt sem vinnur gegn helgislepju af öllu tagi er mér mjög að skapi, þoli ekki heilagar kýr.

Georg P Sveinbjörnsson, 6.9.2007 kl. 14:35

8 identicon

Virða rétt hneykslan Íslamskra Araba? Eru viðbrögð þeirra virkilega sambærileg við umræðuna í þjóðfélaginu út af þessari auglýsingu. Allur Íslamski heimurinn fór á hvolf við þetta! Dauðahótanir í garð teiknimyndahöfuna sem sumir fara huldu höfði enn þann dag í dag. Fánabrennslur og þúsundir manna á götum margra arabalanda með kröfuspjöjld sem kröfðust dauða þeirra sem komu að þessu skopmyndamáli. Hrun í sölu á dönskum vörum í þessum löndum. Það er e.t.v. ekki pólitískur réttrúnaður að segja að það sé einhver mismunur á milli múhmeðs og kristinnar trúar, en gerir fólk sem ber þetta saman ekki einhverja grein fyrir ef sambærileg auglýsing þar sem gert væri eitthvað, segjum góðlátlegt, grín af einhverjum sögulegum hluta úr lífi spámannsins, að afleiðingarnar yrðu töluvert alvarlegri og meiri en heitar bloggfærslur og viðtal í kastljósi. Vissulega yrði eitthvað þvíumlegt  ALDREI leyft til að byrja með í múhameðstrúar löndum, og jafnel ef við gefum okkur svo, þá held ég að það sé ekki erfitt að ímynda sér alla framleiðendur og leikara sem að þannig auglýsingu stæðu sem feiga menn, ég er fyrir mitt leyti viss um það. Hér á landi eru umræður, og menn skiptast á skoðunum og hluti landsmanna finnst þetta ósmekklegt hluti ekki, gott mál. Sumir trúaðir hneykslast á auglýsingunni, aðrir ótrúaðir heykslast á hneykslun trúaðra og svo framvegis. En auglýsingunni var og er sjónvarpað enn í dag þrátt fyrir það. Engar dauðahótanir, fánabrennslur eða fjöldamótmæli á götum úti og öllum er frjálst að tjá sig um þetta án þess að hafa áhyggjur að menn frá biskupstofu komi bankandi upp á með biblíu í annari og handjárn í hinni. Þessu getur þú hinsvegar átt von á í sumum löndum sem hafa sérstaka trúarlögrelgu.  Í alvöru talað, ég geng svo langt að segja að þessi samanburður sé vanhugsaður.

Jón Sigtryggsson (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 01:27

9 identicon

Jú, vissulega er rétt að samanburður á þessum viðbrögðum og þeim í Íslömskum löndum við dönsku skopmyndunum sé nær engan vegin til þeirra hótana, mótmælaganga og morða á Skandinavíubúum sem komu í kjölfarið á útgáfu þeirra.

En sú grundvallarhugmynd sem hvetur báða trúarhópa til að sýna neikvæð viðbrögð er sú sama - þ.e. sú að trúarbrögð séu hafin yfir önnur málefni, það megi ekki gera grín að þeim eða meðhöndla eins og hvað annað.

Við skulum ekki gleyma því að Múslimar mótmæltu ekki bara því að það væri verið að gera skopmyndir af spámanni trúarbragða þeirra, heldur mótmæltu þeir líka því að einhverjir Evrópubúar væru að teikna myndir af spámanninum yfir höfuð, þar sem það er harðbannað innan Islam. Og í því brugðust yfirvöld Jyllands-Posten og öllum Evrópubúum, með því að vernda ekki þann tjáningarrétt sem við teljum vera mannréttindi á vesturlöndum.

Helgi Þór lítur á þetta ótengt trúarbrögðum, en segir að það sé lágkúrulegt að gera gys að morðinu á Jesú kristi. Þetta finnst mér athyglisvert sjónarhorn, þar sem það er ekki beint verið að gera grín að neinum nema hugsanlega Júdasi í auglýsingunni. Það væri annað mál ef auglýsingin hefði gengið út á það að rómverjinn sem stakk Jesú í síðuna þegar hann hékk á krossinum hringdi í vini sína, og sýndi þeim með myndsímanum hvað hann væri að gera við fangann.

Hann vill bera þessu saman við það ef auglýsing yrði gerð eftir morðinu á John F. Kennedy, en sambærileg auglýsing við það væri í rauninni ef hún sýndi Kennedy vera að snæða kvöldverð daginn áður, og eitthvað fengi hann til að fara óvænt til Austin í Texas í stað Dallas. Eða hann veldi það að keyra um í brynvörðum bíl.

Fyrir utan það að það eru miklu betri heimildir fyrir tilvist Kennedys, Díönu prinsessu og Saddam Hussein heldur en fyrir tilvist Jesú krists.

Ásthildur nefnir:

,,Einhverjir kristnir einstaklingar hafa hins vegar leyft sér að láta í ljós skoðun sína ... við þessari auglýsingu.

Er það bannað? Búum við ekki þjóðfélagi sem leyfir frjáls skoðanaskipti og að fólk megi láta tilfinningar sínar í ljós (í ræðu og riti) án þess að vera sakað um húmorsleysi og jafnvel ofstæki?"

Vissulega mega allir hafa sína skoðun. Og vegna þess að þjóðfélagið leyfir frjáls skoðanaskipti megum við gagnrýna og rífast um þessar skoðanir eins mikið og við viljum. Allir hafa rétt á því að vera vitleysingjar, og allir hafa rétt á því að reyna að sannfæra aðra um það sem þeir telja vitleysu.

LegoPanda (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband